Tyggjóskattur

Ég er sammála Ögmundi. Væri ekki hægt að setja tyggjóskatt líka. Peningunum væri síðan varið í að þrífa upp tyggjóklessur í borginni.

Annars er ég nokkuð hress bara.


mbl.is Sykrað gos skattlagt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigraðar sálir og rauðar buxur

Glugginn í herberginu mínu hérna á Þórsgötunni sný í átt að Hallgrímskirkju. Það er töluverður gangur af fólki sem skundar framhjá glugganum. Í gær sá ég Megas bregða fyrir, hann var í rauðum buxum og virtist hugsi. Sigmundur Davíð áttil leið framhjá síðdegis. Hann var í slagtogi við óþekktan mann. Ég var að virða fyrir mér mannlífið þegar þeir birtust. Augu okkar Sigmundar mættust. Ég hnikkaði til hans, hann hnikkaði á móti. Hann virtist sigraður.

Annars er landið að rísa. Það er að koma vor og ég er ekki frá því að vorið hafi hrifið mig með sér. Ég er fullur bjartsýni.

Þess má svo geta að ég er að verða faðir.

Ég ætla að verða góður faðir.


Annasamir dagar og undarlegir draumar

Var að vakna. Ég fékk mér dálítinn lúr í sófanum áðan eftir undarlegan morgun. Mig dreymdi ýmislegt. Sérstaklega dreymdi mig bólur sem höfðu hreiðrað um sig vísvegar um líkama minn mér til mikillar skelfingar. Þetta voru metnaðarfull og glæsileg graftarkýli og litur þeirra var allskyns. Skyldi þetta þýða eitthvað?

Fyrir þá sem ekki vita hef ég hafið sambúð með Árna Steinari Stefánssyni evrópusinna, glæsimenni og yfirdólg. Við félagarnir leigjum í Þórsgötu og í stuttu máli fer frekar vel um okkur hérna. Rétt er að geta þess að Árni á í sambandi við kvenmann.

Ackmed í krambúiðinni hefur slegið í gegn hjá okkur sambýlismönnunum. Þvílíkur maður. Þvílíkar móttökur hjá einum manni. Ætli hann eigi eftir að halda áfram að vera í miklum metum, eða getur verið að maður fái nóg einn góðan veðurdag og grípi í skyrtuna hans og segi honum að grjótahalda kjafti.

Var að muna það núna, lenti í sérkennilegu rifrildi í áðurnefndum draumi. Einhliða rifrildi. Ónefnd stúlka að norðan kennd við sól og nes jós yfir mig skömmum á fínum veitingastað og hreytti skömmum. Vona að mig dreymi eitthvað fallegt í nótt. Ég á það skilið.

Ef einhver sér ökutækið kx-347 vinsamlegast látið mig vita. Um er að ræða unga dömu á gömlum ,hvítum og ryðguðum Wv polo. Hún er dökkhærð, með tattoo af höfrungi á ökklanum, reykir Salem og drekkur Magic í stórum stíl. Einnig er vert að minnast þess að það er töluvert af sóma samlokubréfum og séð og heyrt blöðum á víð og dreif um bílinn, já og eitthvað af sígarettuösku á gírstönginni. Endilega látið mig vita ef þið sjáið hana, vinur minn er nefnilega í öngum sínum eftir náin kynni við hana og þarf virkilega að ná á henni. Þetta er spurning um heilsufarslegt öryggi þjóðarinnar.

Liðnir dagar hafa verið undarlegir, komandi dagar verða jafnframt annasamir og jafn undarlegir. Skólinn er ekkert að grínast ,honum er alvara. Sömuleiðis lífinu.


 


Þegiðu vindur

Þegar ég var lítill stóð ég í rokinu og reyndi það að láta vindinn hætta að blása með því að standa andspænis og segja kröftuglega: " Vindur, þegiðu." Það gekk aldrei. 

Sömuleiðis þóttist ég vera súpermann stundum og hneppti eftstu tölunum saman svo úlpan varð hálfgerð skikkja. Mér tókst aldrei að fljúga.

Við Ronald stóðum fyrir útvarpsteyminu Lagsi og Paxi þegar við vorum samferða í leikfimistíma í Grindavík í gamla daga. Ég hef aldrei verið með útvarpsþátt.

Kannski einhvern daginn.


Djöull er gott að vera til

Bæjarstjórinn vinur minn hann Hlynur átti kollgátuna þegar hann sagði:

 

" djöfull er gott að vera til"

Það er þó fylgifiskur tilverunnar að eldast líkt og róninn á spáni lenti svo illa íforðum daga

Kannski hafði hann sitthvað til síns máls þegar ég kom að honum ofurölvuðum liggjandi í götunni og spurði:

" why did you drink so much my friend?"

" because I´m old and ugly"

Það var reyndar rétt hjá kauða. Hann var fremur gamall og lítið fyrir augað.

 

 


Er Dísa heima

Frambjóðandi fyrir sjálfstæðisflokkinn breytti statusnum sínum rétt í þessu úr " single" yfir í "in a relationship."

Annar frambjóðandi fyrir sama flokk skrifar: "Rúsínur er hollar. Jógúrt er holl. Jógúrtrúsínur hljóta að vera hámark hollustunnar."

Prófessor í Háskólanum skrifaði á sinn status um kvöldið að hún væri orðin tipsy, og það einungis eftir eilítið af rauðvíni.

Sævar vinur minn er þessa dagana að kynnast stelpu á msn. 

Fyrir 12-13 árum hefði hann þurft að hringja heim til hennar hefði hann eitthvað vilja gera hosur sínar grænar. Að öllum líkindum hefði hann sveittur um lófanna þurft að kynna sig fyrir foreldrum hennar í leiðinni og segja: " Góða kveldið, Sævar heiti ég, er Dísa heima."

Ég velti því fyrir mér hvort internetið sé óvinur rómantíkarinnar.

 

 


Gallar trompaðir af kostum

Ég hugsa að ég verði seint talinn hæglátur og fyrirferðalítill einstaklingur. Mér varð hugsað til galla minna í dag komst að því að þeir eru margir hverjir stórkostlegir. Svo var mér hugsað til kostanna og áttaði mig á því að þeir eru jafn stórkostlegir, jafnvel stórkostlegri. Ég ákvað að láta þar við sitja með þá pælingu alla og fékk mér harðfisk.

Undarlegt er þetta með harðfiskinn yfir höfuð. Mér finnst hann í sjálfu sér ekkert sérstaklega góður. Ég kaupi hann þó iðulega og borða. Finnst mér hann kannski bara góður. Afhverju set ég þá upp svip og anda með nefinu þegar ég neyti hans. Afhverju borða ég hann yfirleitt. Er harðfiskur kannski vanabindandi. Eða er það ofurþjóðlegt yfirbragð hans og hollusta sem gerir það að verkum að ég borða hann. 

Ég veit það ekki.

Annars er það að frétta af mér að tilvera mín er í senn margslunginn, óvænt , spennandi og yndisleg.

Ég er skotinn í stelpu.

 

 


Gátlisti föstudagsins 13 febrúar

Vakna á tilsettum tíma og drífa sig í tima

Fara í klippingu og kaupa viðurkennt í hárið                                                                   TÉKK

Skúra, þurrka af og brjóta saman þvott                                                                         TÉKK

Kaupa unaðsromm og öl                                                                                                TÉKK                                                        

Brosa framan í spegilmynd mína og segja upphátt: Djöfull er ég svalur

Ástunda kurteis og góð samskipti laus við fagurgala                                                     TÉKK

Fara út að hlaupa

Skrifa partydisk fyrir fyrirpartyið

Verða mér úti um klaka                                                                                                  TÉKK

Raka hárin í kringum geirvörtunar                                                                                  TÉKK

Rúllu upp gagnaprófi í aðferðafræði

sækja skyrtuna til mömmu og skila ryksugunni                                                             TÉKK

Hringja í félag og athuga með allsherjar alheimsstatus                                                TÉKK

Gera sig að fífli í beinni útsendingu í útvarpi allra landsmanna                                      TÉKK

Misstíga sig svo það jaðri við að ég haltri                                                                      TÉKK

 

 

 


Fokk off

Hversu lengi getur maður látið sig varða um hamfarir heimsins. Á ég að soga í mig hamfarirnar í Ástralíu, ástandið á Gaza, ískyggilegt efnahagsástandið og nokkurn veginn allt það óréttlæti og óáran sem heimurinn hefur upp á að bjóða.

Ég persónulega ætla að gefa skít í hamfarir annarra næstu vikur. Ég ætla að yppa öxlum yfir þeim ógeðfelldu og ógeðslegu fréttum um fjöldamorð, siðleysi og annað i þeim dúr sem tröllriðið hefur öllu upp á síðkastið. Ég ætla að hverfa inn í sjálfan mig og virkja það góða.

Ekki svo að skilja að ég ætli að láta skilið við samúð og hjálpsemi. Ég kem enn til með að opna dyrnar fyrir eldri konum , bjóða góðan daginn, auk þess sem ég vík mér ekki undan að hjálpa mínum nánustu ef þess þarf.

 

Annars ber þetta hæst:

 

Í steinapottinum í laugardagslaug sat ungur drengur ásamt fáeinum hnátum á sama reki. Hópurinn var svona á að giska í sjöunda bekk. Drengurinn skýrði hátt og snjallt fyrir dömunum hvað það fælist í því að kömma.  Og spurði svo í lokin eina hnátuna hvort hann hefði leyfi hennar til þess að kömma á hana. Allir í pottinum heyrðu, sumir hlógu, aðrir settu upp svip sem tjáði hneykslan.

Undirritaður snarsmellti sér í bingó á dögunum. Ég vann sumsé tvo vinninga. Báða í svokölluðu standandi bingó. Ég hafði uppúr krafsinu einhverskonar kynlífsleikfang. eggjandi undirfatnað, ósvkiinn rakhníf sem mér er tjáð að sé eilífðareign, nú svo og klippingu og ljósakort.

Á morgun er árshátíð stjórnmálafræðinema. Hún verður haldin á Rúbín og ég er búinn að melda mig. Jakkafötin er klár og ég er spenntur. Kata Jakobs kemur til með að heiðra okkur með nærveru sinni sem er , ja, alveg frábært. Spenntastur er ég þó fyrir úrslitum kosninga. En þar fæst úr ráðið hver hlýtur titilinn " bjartasta vonin" og "mesti sprelligosinn". 

Átján vikna æfingaprógrammið fyrir maraþonhlaupið fer senn að hefjast. Ég iða.

Það er breytingar í farvatningu er varða búsetu mína. Ég kem til með að flytja útúr klausturstíg þann 1. mars. Stórmennið og öndvegispilturinn með skandinavísku velferðareinkennin og evrópufasið hann Árni Steinar Stefánsson hyggst leigja með mér. Og hlakka ég mikið til.

Bólugrafinn unglingur sagði fokk off við afgreiðsludömuni í sjoppunni uppi í Grafarholti. Ég veit ekki hvað undan gekk.

Að lokum langar mig til þess að þakka meðlimi úr frængarði mínum fyrir bjórinn sem hann veitti mér óafvitandi síðustu helgi. 

 

 

 

 

 


Ginseng Tyggjó

Jú rétt er það Árni. GCD er reyndar hljómsveitin en ég gef rétt fyrir þetta svar engu að síður.

Þá er það skrýtlan...

Veistu afhverju Stevie Wonder er svona ríkur? Núhh..það er af því að hann sér aldrei neitt sem hann langar í..

 

Annars er það af mér að frétta að ég er orðinn alveg vitlaus í Ginseng tyggjó. Ég sperrist allur upp eftir eitlitla tuggu og fæ ekki nóg.

Góðar stundir

 

 


Næsta síða »

Um bloggið

Freyr Arnórsson

Höfundur

Freyr Arnórsson
Freyr Arnórsson
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...5478_740575
  • ...117065_5478
  • ...00014926
  • ...marathon
  • SN150823

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 19203

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband